Sandnes
Aðrar síður
Bloggsíður Sandnesinga
Flottar síður Sandnesinga
13.05.2011 12:31:22 / BSP

Ættarmót 24-26 júní 2011

Kæru ættingjar og vinir.



Loksins er komið að því að afkomendur Einars Jónssonar f. 15.08.31 d.
07.06.2001 og Eyrúnar Gísladóttur f. 12.06.33, haldi ættarmót. 
Ættarmótið verður haldið helgina 24-26 júní 2011 að Þórisstöðumi Svínahrepp.301 Akranes
 Fólk getur komið þegar því henntar eina sem verður á dagskránni er að hitta
hvort annað njóta samvista, og snæða saman kvöldverð milli kl. 20 -?
laugardagskvöldið 25 júní í sal sem er þarna á staðnum.  Allir koma með sinn
mat og sjá um sig. Tjaldstæði eru á staðnum fyrir þá sem hafa áhuga að eyða
helginni í að kynnast góðum hópi ættingja og afkomenda þeirra.  Verðum við
systkynin mætt á föstudagskveldinu til að taka á móti ykkur um kl. 18 og vísa á
tjaldstæðin.
Einar var yngstur af systkynunum frá Bjarnanesi og erum við því síðust í
röðinni að svo stöddu að halda utan um þetta ættarmót, spurning er hvert
framhaldið verður.  Vonumst við til að sjá ykkur sem flest og gaman væri ef
einn í hverjum hópi tæki saman til glöggvunar hve margir eru komnir út af
hverjum.  T.d afkomendur; Elíasar, Sigurveigar, Sigríðar, Matthíu, Guðrúnar,
Brynhildar, Ingimundar og Sigurðar Þorbjarnar.  Verðinu er stillt í hóf.

Kærar kveðjur;
Sævar, Ásdís, Halldór Jón, Sóley, Sigríður Björg, Margrét Lilja og Eyrún.

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.05.2011 22:25:22 / BSP

Ættarmót.

Frétti það á skotspónum um helgina að það yrði ættarmót hjá Bjarnarnesættinni í sumar, einhver af þessum ættlegg hafi fengið tilkynningu, sem ekki hefur skilað sér áram, allavega ekki til mín.
Gott væri að fá að vita stað og stund.
kveðja Signý.

» 1 hafa sagt sína skoðun

13.03.2011 21:00:19 / BSP

Er að panta vikur í sumar



Sæl verði.
Við ætlum að panta vikur í sumar eins og samþykkt var á fundi hér um árið.
1: Vikan 1.7. - 8.7. Ingibjörg, Hafþór og Sigvaldi
2: Vikan 8.7. - 15.7. Sigvaldi og Auður
3: Vikan15.7. - 22.7. Signý og Bjössi 

Gert eftir samtal við Sigvalda, Ingibjörgu og Hafþór, einnig var Bjössi með í ráðum.

                                                                        Kveðja Signý.


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.08.2009 21:43:06 / sandnes

Sæl.

Sæl öll.

Ég fór á ættaróðalið okkar í síðustu viku, ekki get ég nú sagt að aðkoman hafi verið stórkostleg, ýldulyktin gaus upp á móti mér eins og úr yfirgefini fískvinnslu. orsök lyktarinar fannst í þvotthúsinu, þar sem uldið slorið og bloðið lá í kistuni, það er ekki nóg að slökkva bara á kvíkindinu, það þarf líka að þrífa upp eftir sig!  
ég veit ekki hvernig sá sem skyldi svona við gengur um heima hjá sér, en svona gekk húsmóðirin ekki um og þá eigið þið heldur ekki að gera það og takiði hana til fyrirmyndar. munum nú að heiðra minniningu Afa og Ömmu og hegðum okkur í þeirra stíl þegar kemur að fallega ættaróðalinu okkar sem við viljum öll vera velkomin á, en eiga ekki von á slæmum móttökum og öðru slíku.

Kv. Anna Katrín

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.07.2009 21:01:16 / sandnes

Ólafur og Sandnes

Góðan dag Gott fólk ég ætlaði að vera góður við ykkur og láta ykkur vita af því að um veslunarmanna helgina semsagt frá 30 júlí til 3 ágúst ætla ég ásamt "nokrum vinum mínum" að halda upp á afmælið mitt á sandnesi <
ég veit að sandnes er opið ollum þessa helgi og ætla ég að nýta mér það :)
ég er ekkert að fæla ykkur frá því að koma og vera með í gleðskapnum en bara að komast hjá leiðindum og veseni :)

ég mun skila húsinu hreinu og fínu ég þekki umgengis reglurnar og allt það :)

Góðar stundir
kv.Ólafur

» 1 hafa sagt sína skoðun

02.06.2009 23:12:41 / BSP

Sandnes 10 - 13 júlí 2009

Sæl öllsömul
Get ég fengið Sandnesið fyrir mig og mína fjölskyldu frá 10. til 13. júlí 2009. Vinsamlegast látið vita sem fyrst!!!!
Dögg


Þetta kom frá Dögg og var skrifað í gestabókina, færði það hingað.
Bjössi P.

» 1 hafa sagt sína skoðun

13.03.2008 16:11:05 / BSP

ÆTTARMÓT

Niðjar

Jóns Sigurðssonar, fæddur í Kaldbak, Strand. 26 október 1891, látinn 23. mars 1965 og Jórunnar Agöthu Bjarnadóttur,  fædd á Klúku í Bjarnafirði, Strand. 11. maí 1892 látin 10. október 1941

Mótið verður haldið fyrstu helgina í júlí, þ.e. þann 4. júlí – 6. júlí 2008, við Samkomuhúsið Baldur á Drangsnesi.

Hver og einn sér um sig í mat og drykk, heitt kaffi verður á könnunni í Samkomuhúsinu Baldri.  Kolagrill er á staðnum fyrir þá sem vilja.

Tjaldstæðið verður kr. 1.000- pr. Tjald/Vagn.

Þar sem þetta bréf er eingöngu sent á einn í hverri fjölskyldu, þá er sá/sú sem fær þetta bréf beðin um að láta systkin sín vita af þessu.

 

Dagskrá verður send seinna, ef einhver lumar á skemmtilegu atriði, (fyrir kvöldvöku) og vill koma því á framfæri, þá vinsamlegast látið okkur vita.

Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til :

                            Jórunnar:    jorunn@tmd.is          s: 895-3438

                            Biddýjar:    biddyk@internet.is     s: 660-6086

                            Auðar         :        audurkri@lsh.is          s: 864-3516

                            Klöru:        klarak@simnet.is">sklarak@simnet.is      s: 866-1121

 

Vonumst til að sjá sem flesta.

 

Kveðja frænkurnar

         Matthía, Anna, Jórunn, Jóhanna, Auður, Klara og Elva

 

 

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.02.2008 00:11:06 / sandnes

týnd lopapeysa!!!!

Ágætu Sandnesingar 

Kannast einhver við að hafa séð gráa lopapeysu eða hafa tekið hana í misgripum í sumar? Hún er hneppt grá með hvítu mynstri. Hef ekki fundið hana síðan í sumar. Datt i hug að athuga hvort hún hefði orðið eftir á Sandnesi.
Ef einhver hefur séð hana getur sá og hinn sami haft samband við mig.
hlynur07@ru.is. eða í síma 6911463 eftir kl 17

Annars er bara allt gott að frétta af mér.  

Kveðja Hlynur

» 1 hafa sagt sína skoðun

12.02.2008 22:24:00 / sandnes

Erum komin með nýja síðu.

slóðin er www.123.is/bspsola

 

Kveðja Signý


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.02.2008 10:03:12 / sandnes

sumarfriid

komid sæl øllsaman datt i hug ad skrifa her um sumarfriid å ad vera ættarmot i juli er tå einkver i frii mer langar ad koma til landsins tå bara spurning er enkver i frii tå langar ad hitta sem flesta sidan eg ekki å heimili lengur å islandi ha ha ju eg gleimdi Signy sagdi eg mætti koma kvenær sem er ekki meira bull her er alt gott ad `fretta vorid er komid held eg bid bara heilsa ykkur øllum sjåumst vonandi hress i sumar kvedja Gudny

 

 Færta úr gestabók

af BSP.

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.01.2008 20:31:07 / sigvaldi

nýtt ár

Gleðilegt ár öll sömul

nú er komið nýtt  ár og allir orðnir slakir eftir stress haustsins  ég líka svo sem ekkert að frétta hérna  ekki búin að frétta hversu mikið af trjáplöntum fást  á þessu ári til niðursetningar vonandi sem flestar  svo fleiri geti tekið þátt. en af því að ekkert verður úr formlegu félagi  um reksturinn hef ég verið að hugsa kanski hefur einhver áhuga að stofna félag méð mér  eða selja sinn hlut er tilbúinn í viðræður um slík mál

HV Sigvaldi


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.09.2007 21:27:56 / sigvaldi

fundur eigenda sandness

vegna óska þess sem lagði skjalið framm hef ég eitt síðasta skjali

en í því sambandi  hefur mitt markmið með Sandnesi verið að búa þannig að jörðini að sem flestir sem tengjast afkomendum'Olafs og Brynhildar hefðu sem mesta ánæju að dvelja sem lengst  og að húsið verðe sem mest í stöðugri notkun helst allt árið .En til að það geti orðið verða sistkin

mí að koma sér saman um reglur sem allir geta sætt sig við  og verið ánægðir og ekki að væna hvert annað um yfirgang og ásakanir um að vilja sölsa eitthvað undir sig  en til að það geti orðið þarf að leggja í smá kostnað sem getur skilað sér margfalt til baka í ánæju og skemtilegra andrúmi fyrir börn og barnabörn .

En afþví að systur mínar vilja ekkert formlegt félag þá er mér vandi á höndum í raun aðeins 3 kostir það er fara í fötin hanns Jóns  selja eða láta mæla minn hlut út svo maður verði laus við þrasið í eitt skipti fyrir öll


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.09.2007 11:39:33 / BSP

FUNDUR

 
Ég boðaði eigendur Sandness til fundar 22,sept er búinn að senda fundarboð í pósti og og í tölvubréfi til allra eigenda
KV Sigvaldi

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.07.2007 22:52:32 / sandnes

Ákveðið með hátíð

Sæl

Nú eru hamingjudagar búnir. Þetta var frábær helgi. Geggjað veður og fjölbreytt dagsrá. Það eru myndir inná blogginu mínu um það. 123.is/skogaras

Nú er ég búin að ákveða 2 dagsráliði fyrir okkar hátíð. Það er vatnsbyssustríð milli barna og fullorðna kl 14 á laugardag og svo eiga allir að borða kræsingar og drekka kaffi á eftir. Hvernig hljómar það? Það þarf bara að mæta með vatnsbyssur og koma mðe eitthvað með kaffinu, það þarf ekki að vera tertur bara eitthvað smá. Við getum líka skiptst á að baka pönnukökur og allir fengið sér svoleiðis saman. En látið mig nú vita hverjir mæta, svo ég verði ekki ein þarna með Guðný, við höndlum ekki að vera einar á móti mínum börnum í bissó.

 

Igga


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.05.2007 21:30:35 / sandnes

Sandnes hátíð halda skal

 

 

 Hvar er þessi mynd tekin.

 

 

Sælir Sandnesingar

 

Nú er ég búin að tala við Guðnýu og hún verður á landinu í júlí. Hún fer helgina 21-22 júlí svo að best er að reyna stíla á helgina 14-15 júlí til að hittast. Ég ætla að skrifa bréf til æðstu manna ættarinnar og biðja þau öll um að koma skilaboðum til afkvæma sinna, þannig að allir ættu að vita af þessari helgi.

Ef einhver er með hugmyndir um hvað er hægt að gera skemtilegt þessa helgi þá er um að gera að hafa samband. Ég nenni varla að standa í þessu ein, hjálp einhver?

Það væri gaman að geta haft litla brennu á laugardeginum og einhverja dagskrá fyrir börnin, þau eru nú orðin svoldið mörg.

 Eru ekki allir til í þetta?

"Skrifa svo  í sagt sína skoðun"

 

Einnig átti ég að koma þeim skilaboðum áfram að Jórunn og Ármann eru búin að panta síðustu vikuna í júlí. Það eru allir velkomnir að vera á svæðinu en þau vildu bara bóka gistiplássið.

 

Kveðja Igga

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 27108
Klukkan
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti